Ríkisstjórnir allra aðildarríkja ESB skipta formennsku ráðs Evrópusambandsins þannig á milli sín að með 6 mánaða millibili tekur eitt aðildarríki við formennskunni af öðru, þann 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Formenskunni fylgja ýmsar mikilvægar skyldur, svo sem að halda fundi ráðs Evrópusambandsins, einnar ábyrgðarmestu stofnunar ESB. Auk þess ber formennskuríkið ábyrgð á að tryggja að aðildarríkin vinni í sameiningu, komist að málamiðlunum þegar þess er þörf og vinni öllum stundum í þágu heildarhagsmuna ESB.
Þrjú aðildarríki („formennskuþrenningin“) deila 18 mánaða vinnuáætlun formennskunnar á milli sín. Formennskuríki setur fram nákvæm markmið fyrir formennskutímabilið og vinnur með hinum tveimur formenskuríkjunum að þeim langtímamarkmiðum sem ekki er hægt að uppfylla á hálfu ári.
Skoða vefsíðu ráðherraráðs Evrópusambandsins til að fá frekari upplýsingar um nýverandi formennsku.