Fyrirtækjakönnun á vegum Vinnuverndarstofnunar Evrópu (EU-OSHA) um nýjar og aðsteðjandi hættur (ESENER) er ítarleg könnun sem skoðar hvernig öryggis- og heilbrigðisáhættum er stjórnað á evrópskum vinnustöðum.
Þúsundir fyrirtækja og stofnanna í Evrópu hafa verið beðin að fylla út spurningalista sem beinir sjónum sínu að:
- Almennum vinnuverndaráhættum og stjórnun þeirra
- Sálfélagslegum áhættum eins og streitu, einelti og áreitni
- Hvötum og hindrunum á sviði vinnuverndarstjórnunar
- Starfsmannaþátttaka í vinnuvernd
Niðurstöðurnar úr þessum viðtölum eru studdar af greiningu á fyrirliggjandi gögnum sem byggja á ítarlegum rannsóknum sem beina sjónum sínum að ákveðnum efnum. Í þessum rannsóknum er beitt eigindlegri og megindlegri aðferðafræði til að öðlast betri skilning á helstu niðurstöðum rannsóknarinnar.