Sigurvegari í keppninni um Kvikmyndaverðlaun herferðarinnar Vinnuvernd er allra hagur árið 2019
Fuglaeyja | Sviss | Maya Kosa, Sergio Da Costa
Dómnefndin var heilluð af líkingunni á milli batans hjá særðu fuglunum og endurhæfingunni hjá aðalpersónunni. Í myndinni er sögð falleg saga um umönnun og lækningu í naumhyggjustíl en þó með nákvæmri notkun á tungumáli kvikmyndalistarinnar.
"Eftir langvarandi veikindi og einangrun hefur Antonin störf á verndarsvæði fyrir fugla. Hann er enn að glíma við þreytu, sem er afleiðing af veikindum hans. ... Í þessum litla heimi nýtur Antonin jafnmikillar verndar og særðu fuglarnir. Sumir af villtu fuglunum sem komið er með eru illa særðir og aðrir eru í áfalli Ástand þeirra krefst þess að dýralæknirinn og hjúkrunarfræðingurinn leggi sig öll fram – og þau gera það. Ekkert þeirra lætur sér fátt um finnast um ærandi hljóðin sem berast frá nærliggjandi flugvelli. ...Þessi hjartahlýja saga um þennan undursamlega stað þróast smám saman yfir í dæmisögu um það að bjarga dýrum – og mönnum – sem þurfa á því að halda." Annina Wettstein á vefsíðu Dok Leipzig
Tilnefningar
- Eftirköst (þ. Nachspiel), Þýskaland
- Enski frændi minn (e. My English Cousin), Katar, Sviss
- Róbótaást (e. Robolove), Austurríki
- Bragð af von (e. Taste of Hope), Sviss. Þýskaland
- Lærlingurinn (e. The Young Observant), Ítalía
- Öryggi123 (e. Safety123), Austurríki, Ítalía
- Ekkert að óttast (e. Nothing to Be Afraid Of), Frakkland, Armenía
- Aldrei uppljóstra einn (e. Never Whistle Alone), Ítalía